hitt og þetta
Jamms það er búið að vera eitthvað voða mikið að gera hjá mér undanfarið, skóli,vinna, djamma......usss hef ekki tíma fyrir þetta allt. Það gengur bara mjög vel í skólanum. Pirrandi samt hvað kennarar eru með mikið samsæri að hafa alltaf einhver próf á sama tíma....alveg óþolandi sko....Ég var að skoða próftöfluna mína og ég byrja í jólaprófunum 1.desember og er búin 6. ekkert smá nice hjá mér. Ætla nú samt að vinna í fríinu svo marr fái einhvern pening. Er að bíða eftir svari frá fyrrverandi vinnuveitenda mínum sem verður rekstrarstjóri eða eikkað í Maður lifandi, hann ætlaði að reyna að redda mér vinnu þar :) Kristín mín kom til mín um helgina og við fórum á djammið niðrí bæ. Ætluðum nú bara að fara á laugardeginum en enduðum víst með að fara báða dagana sem var bara geggjað :) Þurftum ekki að borga mikið þar sem Kristín var með einhvern gaur sem bauð okkur í glas :D Fínt að fá svona frítt að drekka.
Það er orðið sjúklega kalt orðið. Maður er alltaf jafn hissa hvað það verður kalt á veturna...brrrrrr
Ég er að vona að Chryslerinn fari að seljast af því að mig vantar bíl!!! Leiðinlegt að þurfa alltaf að fá lánaðan bílinn hjá Sillu og Pede greyjunum. Jæja best að fara að læra....nóg af lærdómi alltaf hjá manni.
