Tenglar

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Leikur dagsins

HÆTTISSU

26. janúar 2007 klukkan 04:46

Frá og með deginum í dag er ég hætt þessu bloggi ég nenni þessu ekki þar sem enginn virðist skoða það nema 2 manneskjur.....sorry hef margt annað við tímann að gera! Takk fyrir mig og bless.
Er annars með myspace.com/bjorgelin en blogga samt ekkert þar.....bæbæ

Björg Elín Guðmundsdóttir
1 athugasemd

Kominn tími fyrir blogg!

11. desember 2006 klukkan 03:17

Held það sé bara kominn tími á að blogga.  Það er búið að vera svo brjálað að gera hjá mér undanfarið en loksins er orðið nokkuð rólegt.  Ég er búin að selja bílinn og íbúðina. Tók aðeins 2 daga að selja íbúðina! Ég átti alls ekki von á að það tæki svona stuttan tíma. Svalur Ég er búin í jólaprófunum líka sem betur fer, eftir langa og leiðinlega lestrarviku.  Mér gekk bara misvel í prófunum, ég vona bara að ég nái þeim öllum svo að ég fái námslán.  Fæ einkunnirnar á föstudaginn Hissa bíð spennt eftir þeim.  Á morgun byrja ég að vinna í Nettó á fullu.  Fínt að vera þar í jólafríinu og safna einhverjum pening.  Væri samt alveg til í að liggja bara í leti í öllu jólafríinu og gera ekki rassgat! Ætla að reyna að semja við verslunarstjórann að fá kannski að vera í fríi milli jóla og nýárs svo maður fái nú að slaka aðeins á áður en næsta skólatörn byrjar....

Er einhver sem veit um litla íbúð eða herbergi til leigu ódýrt og þar sem mætti hafa kisur??? Vantar einhvern samastað eftir áramót nebblega :Þ Endilega látið mig vita ef þið vitið um eitthvað

Nenni ekki að hafa þetta lengra er þunnÞögull sem gröfin

Björg Elín Guðmundsdóttir
5 athugasemdir

hitt og þetta

26. október 2006 klukkan 01:25

Jamms það er búið að vera eitthvað voða mikið að gera hjá mér undanfarið, skóli,vinna, djamma......usss hef ekki tíma fyrir þetta allt. Það gengur bara mjög vel í skólanum. Pirrandi samt hvað kennarar eru með mikið samsæri að hafa alltaf einhver próf á sama tíma....alveg óþolandi sko....Ég var að skoða próftöfluna mína og ég byrja í jólaprófunum 1.desember og er búin 6. ekkert smá nice hjá mér. Ætla nú samt að vinna í fríinu svo marr fái einhvern pening. Er að bíða eftir svari frá fyrrverandi vinnuveitenda mínum sem verður rekstrarstjóri eða eikkað í Maður lifandi, hann ætlaði að reyna að redda mér vinnu þar :) Kristín mín kom til mín um helgina og við fórum á djammið niðrí bæ. Ætluðum nú bara að fara á laugardeginum en enduðum víst með að fara báða dagana sem var bara geggjað :) Þurftum ekki að borga mikið þar sem Kristín var með einhvern gaur sem bauð okkur í glas :D Fínt að fá svona frítt að drekka.
Það er orðið sjúklega kalt orðið. Maður er alltaf jafn hissa hvað það verður kalt á veturna...brrrrrr
Ég er að vona að Chryslerinn fari að seljast af því að mig vantar bíl!!! Leiðinlegt að þurfa alltaf að fá lánaðan bílinn hjá Sillu og Pede greyjunum. Jæja best að fara að læra....nóg af lærdómi alltaf hjá manni
.

Björg Elín Guðmundsdóttir
5 athugasemdir

Jammogjá

10. október 2006 klukkan 23:14
Ég er búin að vera alltof löt að blogga ég veit......Enda búið að vera frekar leiðinlegt hjá mér undanfarna daga...Ég bý núna hjá Sillu og Pede í Kópavoginum sem er bara fínt,þau eru voða góð við mig. Ég reyni bara að hjálpa til við heimilisþrif og annað í staðinn :) Silla er voða ánægð að einhver geri húsverkin án þess að vera beðinn um það hehe.
Mér gengur bara ótrúlega vel í skólanum, átti ekki von að það myndi ganga svona vel fyrstu önnina af því það eru 5 ár síðan ég var í skóla síðast. Það tekur bara tíma að ná tækninni við þetta allt saman. Í dag var miðannarmat í skólanum. Við fengum að vita hvar við stöndum í áföngunum og ég var geðveikt ánægð, var með A í fjórum áföngum og B í einum :D og sirka 97% mætingu.
Síðustu helgi fórum við austur (ég,zil og pede) Ég hitti Kristínu sluttið mitt,hún kom í heimsókn til okkar og við skelltum í okkur við eldhúsborðið og fórum svo á ball á Hvolsvelli. Það var svaka fjör þar nema það voru bara einhverjar gelgjur þarna en það truflaði okkur svosem ekkert. Jamm annars hef ég nú ekki verið að gera neitt merkilegt bara í skólanum,læra og vinna í Gallup. Mér finnst ekkert smá leiðinlegt að vinna þar. Einhverjar hugmyndir að skemmtilegri vinnu með skóla???
Björg Elín Guðmundsdóttir
5 athugasemdir

MySpace

17. september 2006 klukkan 21:21
Var eikkað að nördast að búa til Myspace síðu. Er búin að eignast strax 5 nýja vini.....jeiii
Það er http/:www.myspace.com/bjorgelin ef þið viljið skoða Hlæjandi
Björg Elín Guðmundsdóttir
4 athugasemdir

Meira dót

08. september 2006 klukkan 04:43
Var að setja inn nýjar myndir og könnun
Björg Elín Guðmundsdóttir
5 athugasemdir

Nóg að gera....

08. september 2006 klukkan 04:02

Það er alveg brálað að gera hjá mér núna. Í skólanum alla daga, vinna 3 kvöld í viku hjá Gallup og einhverjar helgar vinn ég í veisluþjónustu. Langt síðan marr hefur þurft að hugsa svona mikið. Það gengur bara ótrúlega vel í skólanum. Það er bara byrjað strax að hlaða á manni prófum. Það er svo sem allt í lagi nema soldið erfitt að læra fyrir lífeðlis-og líffærafræðina. Ég er alltaf að reyna að skipuleggja mig voða vel og mæta vel. Bara búin að skrópa einu sinni.....það er allt Magna að kenna ég þurfti að vaka heillengi til að kjósa hann aðfaranótt miðvikudags enda borgaði það sig hann komst áfram Svalur.Ég er orðin alveg ógisslega þreytt ég nenni ekki að blogga meir í bili. Heldur ekkert merkilegt búið að ske svo sem....

Góða nóttKoss

Björg Elín Guðmundsdóttir
3 athugasemdir

I only pay with an angry sheep :D

02. september 2006 klukkan 03:56

Grunnur að nýrri ensk-íslenskri orðasambandabók!


 1. The raisin at the end of the hot-dog = Rúsínan í pylsuendanum.

2. I measure one-pulled with it = Ég mæli eindregið með því.

3. Now there won't do any mitten-takes = Nú duga engin vettlingatök.

4. I come completely from mountains = Ég kem alveg af fjöllum.

5. Thank you for the warm words into my garden = Þakka þér fyrir hlý orð í

minn garð.

6. Everything goes on the back-legs = Það gengur allt á afturfótunum.

7. He's comepletely out driving = Hann er alveg úti að aka.

8. It lies in the eyes upstairs = Það liggur í augum uppi.

9. She gave me under the leg = Hún gaf mér undir fótinn.

10. He stood on the duck = Hann stóð á öndinni.

11. I teach in breast of him = Ég kenni í brjósti um hann.

12. On with the butter!!! = Áfram með smjörið!

13. In a green bang = Í grænum hvelli

14. I springteach him = Ég vorkenni honum

15. Front seat advise Sir = Forsætisráðherra

16. Stomp steel into them = Stappa stálinu í þá

17. Hot spring river this book = Hver á þessa bók?

18. Nobody becomes an unbeaten bishop = Enginn verður óbarinn biskup

19. I took him to the bakery = Ég tók hann í bakaríð

20. I will find you on a beach = Ég mun finna þig í fjöru

21.To put someone before a cats nose = Að koma einhverjum fyrir kattarnef

22. I only pay with an angry sheep = Ég borga bara með reiðufé

23. I'll show him where David bought the ale = Ég skal sýna honum hvar

Davíð keypti ölið.

24. I will not sell it more expensive than I bought it = Sel það ekki

dýrara en ég keypti það

25. He doesn't walk whole to the forrest = hann gengur ekki heill til

skógar

26. Mountain handsome = fjallmyndarlegur

27. Are you from you = Ertu frá þér

28. What s on the small fish? - Hvað er á seyði?

Björg Elín Guðmundsdóttir
4 athugasemdir

AMMILI

27. ágúst 2006 klukkan 17:32
                     

                          Ég á ammili í dag jeiiiiii
Svalur
Björg Elín Guðmundsdóttir
2 athugasemdir

Skólastelpa :)

24. ágúst 2006 klukkan 04:41
Jájá þá er maður bara sestur á skólabekk eftir langt frí sem átti bara að vera 1 ár en urðu 5.......betra seint en aldrei Hlæjandi Ég er semsagt byrjuð á tanntæknabraut og leggst hún bara vel í mig. Er í 5 áföngum þessa önn, Líffæra -og lífeðlisfræði, sálfræði, bókfærslu, næringarfræði og tölvum. Ég kvíði mest fyrir þessum fyrst nefnda áfanga hann er soldið strembinn víst Óákveðinn Ég þekki sem betur fer eikkað af fólki í skólanum þannig að maður er ekki einn að væflast þarna um gangana.
Ég byrjaði í nýrri vinnu síðasta laugardag í svona veisluþjónustu. Það er bara mjög fínt að vinna við það um helgar. Er svo að spá í að sækja bara um í 10-11 hérna við hliðiná blokkinni 2 kvöld í viku. Það er bara svona til að fá einhvern pening í viðbót.
Við systurnar eigum svo afmæli um helgina, Silla á föstudag og ég á sunnudag. Við erum orðnar hundgamlar, komnar á þrítugsaldur Gráta Ég veit ekki hvort við gerum eitthvað skemmtilegt það kemur bara í ljós. Förum alla vega á sunnudeginum út að borða með mömmu og Gumma.
Jæja verð að fara að sofa, verð að mæta útsofin og endurnærð í tíma á morgun!!


Björg Elín Guðmundsdóttir
4 athugasemdir